|
Hver kynslóð á sína vondu kalla. Þá sem fá börn til að skjálfa á beinunum. Þeir verða holdgerfingar alls þess illa í heiminum og allt það slæma sem hægt er að ímynda sér kristallast í þeim. Fyrir ca 15-20 árum var ákaflega vondur kall sem skelfdi öll börn á Íslandi og er ég viss um að jafnvel bara að heyra nafnið núna nægi til þess að þessum börnum sem nú eru það sem kallað er fullorðin renni vatn milli skins og hörunds. Nú skilja sumir hvorki upp né niður en þeir sem voru á viðkvæmum barnsaldri þegar þættirnir um Nonna og Manna voru sýndir í sjónvarpinu í denn skilja og muna. Þættirnir voru gefnir út á DVD nú fyrir jólin og mínir guttar fengu eintak í jólagjöf.
|
| Siggi December 28, 2008 02:41 PM PST Hummm, heldurðu ekki Svanfríður að það yrði skemmtilegra að komast yfir alla þættina sex heldur en aðeins einn? :) Nei nei, bara smá aulahúmor í tilefni dagsins :) | ||
| Bylgja December 28, 2008 01:00 AM PST já við Bára horfðum mikið á þessa þætti, ég þó heldur minna en Bára - hún er skráð á fansíðu Nonna og Manna á facebook :-) Ég þarf að fara að rifja þetta upp allt saman :-) | ||
| Svanfríður December 27, 2008 09:18 PM PST Þetta voru frábærir þættir og ætla ég mér að komast yfir einn. | ||
| Leave a Comment: |