|
Þegar ég byrjaði að blogga fyrir ca. fjórum árum lofaði ég því hátíðlega að blogga ekkert um stjórnmál enda ömurlega leiðinlegt bloggefni þó ég hafi talsverðan áhuga á stjórnmálum almennt ( sem hefur reyndar dofnað verulega að undanförnu Þetta loforð hef ég haldið með aðeins örfáum undantekningum og þá venjulega vegna mjög öfgafullra dæma úr pólitíkinni. Oft hefur maður látið hjá líða að nefna fáránlega hluti og framvæmdir sem stjórnmála menn hafa látið út úr sér eða gert. Ég meira að segja setti ekki inn færslu þegar Guðni Ágústsson fyrverandi formaður framsóknarflokksins sagði sennilega þau vitlausustu orð sem sögð hafa verið úr ræðustól á alþingi þegar hann sagði í ræðu þar 22. síðastliðin að "Það er ekki til neitt siðgæði í rauninni nema kristið siðgæði" og bætti svo um betur í Kastljósi þegar hann var beðinn um að skilgreina kristilegt siðgæði og sagði þá að "Kristilegt siðgæði væri það að standa vörð um þjóðkirkjuna" Með fyrri ummælunum hrækti hann framan í þá sem ekki eru kristnir með því að segja þá ekki eiga eða búa yfir neinu siðgæði og í seinni ummælunum hrækti hann á þá sem eru kristnir (sem hann reyndar þykist vera) með því að segja eina tilgang siðgæðis þeirra vera að standa vörð um ríkisstofnun!. Hvað getur maður svo sem sagt um svona ummæli? Jú kannski bara að það er þyngra en tárum taki að svona fólk skuli vera fulltrúar á alþingi en sem betur fer eru við allavega laus við þennann froðusnakkara og þótt fyrr hefði verið. Í dag kvað svo annar þröngsýnispostulinn sér hljóðs og hvatti fólk í viðtali í útvarpinu til að kaupa enga flugelda í ár því það þyrfti engin á þeim að halda heldur væri þetta bara peningabrenna. í þakklætisskyni fyrir fjárstuðningin fær maður svo nokkrar púðurkellingar sem maður getur fuðrað upp á áramótunum en féð fer aldeilis ekki á bálið heldur í gríðarlega gott verkefni og vinnu. Ef hinn mikli spekingur sem ég hef reyndar segja ýmislegt miður fallegt í gegnum tíðina hefði hvatt fólk til að kaupa ekki áfengi og kruðerí og spara við sig þannig hefði ég ekki fengið grænar bólur og blóðsprungin augu en svona orð í viðtölum lýsa svo sem ekki öðru en þeim sem þau segja. Ég ætla hins vegar að kaupa minn árlega flugeldaskammt með glöðu og spara þá frekar við mig í ýmsu öðru í staðinn. Jafnvel þó að ég hafi lítið gaman af að freta þessu glysi til himins þá veit ég að þeir fjármunir sem ég legg á móti fuðra ekki með ljósa- og púðurhvellunum heldur koma einhverjum og þá kannski mér og mínum til góða. Lofa því að skrifa ekki aftur á næstunni um pólitík eða pólitíkusa, er komin með ælubragð í hálsin af þessu bloggi.
|
| Leave a Comment: |