|
.. elsku dúllurnar mínar og þakka liðnar stundir. Hef ekki trú öðru en árið 2009 verði dásamlegt í alla staði. Skólar og vinna byrjuð samkvæmt venju og regla að komast á heimilislíf eftir ákaflega gott og þægilegt jólafrí. Hérna fyrr meir gat ég aldrei lesið meira en eina bók í einu. Ekki séns að byrja á annarri fyrr en einni var lokið. Þetta hefur breyst mikið í seinni tíð, sennilega vegna þess að skáldsögur hafa vikið talsvert fyrir allskonar fræði og spekibókum sem gott er að taka sér smá frí frá og glugga í aðrar bækur á milli. Þetta verður til þess að maður er reyndar talsvert lengur með hverja bók en mér finnst þetta dásamlega þægilegt, að lesa í einni bók í dag og svo í annari á morgun. Var að klára Flugu á vegg eftir Ólaf Hauk Símonarson, ágæt svo sem en betra hef ég lesið eftir Ólaf. Heyrumst. |
| Siggi January 9, 2009 11:25 PM PST Hehe já prufa það við tækifæri :) | ||
| Bára January 9, 2009 04:22 AM PST Hefurðu prófað að vera með eina í eyra og aðra í hendi :)?? Þá gæturðu hugsanlega slegið tvær í einni lotu Ég reyndi þetta sjálf, með góða dátann í eyranu og arnald í hendi,, :) | ||
| Leave a Comment: |