Entry: Bíó og fleira. Wednesday, January 28



Horfði um daginn á myndina Slumdog millionaire sem gerð er eftir bókinni Villtu vinna milljarð.
Sem oft áður eftir að hafa lesið bókina fyrst varð ég fyrir vonbrygðum með myndina því mér fannst hún ekki standast væntingar. 
Ágætis afþreying svo sem en ekkert spes.
Eins og svo oft þegar myndir eru gerðar eftir góðum bókum vantar svo mikið og framsetning leikstjóra og framleiðanda of ólík þeirri upplifun sem maður varð fyrir við að lesa bókina.

Í augnablikinu man ég eftir þremur myndum sem tóku bókunum fram að mínu mati en annars er þetta undantekningalítið öfugt. Þetta voru Mýrin eftir Arnald og Shawshank Redemption og Shining sem báðar eru eftir sögum Stephen King.

Þetta er ástæðan fyrir því að ég horfi ekki á sumar myndir sem gerðar eru eftir góðum bókum og til dæmis ætla ég aldrei að horfa á myndina Perfume sem gerð er eftir bókinni Ilmurinn eftir Patrick Suskind.


Við erum klárir á netin og bíðum bara eftir þokkalegu veðri til að hefja vetríð. Gott að komast á net, það er skemmtilegur veiðiskapur og ekki skemmir fyrir að komast aðeins niður á dekk í smá hreyfingu Big Smile

Blíðar heilsur.

   2 comments

Nína
May 22, 2009   01:13 AM PDT
 
Sammála með Slumdog. Sögunni er meira að segja breytt í myndinni. Ég ætla að lesa bókina aftur til að bæta upp vonbrigðin:)
Bylgja
January 29, 2009   08:06 PM PST
 
sammála - ætla ekki að horfa á slumdog millionaire, ég horfði á mynd um daginn sem heitir p.s. I love you og var hún sko alls ekki jafngóð og bókin og ætla ég því alls ekki að horfa á Perfume heldur.

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments