|
Ég hef ákaflega lítið gaman af því að horfa á matreiðsluþætti. Legg mig alls ekki eftir því og sperri vanalega ekki upp skáina þegar þeir eru til sýningar. Einn er þó sá þáttur sem ég staldra alltaf við á og horfi með ánægju og áfergju þegar ég sé honum bregða fyrir. Og þá kannski ekki bara til að horfa á matreiðsluna sem slíka. Þetta eru að sjálfsögðu þættirnir með Nigellu Bites (Lawson). Þvílíkt augnakonfekt sem þessi kona er og dásamlegt að horfa á hana elda mat og narta í hann líka með nautnasvip í myndavélina. Dýrlega falleg kona og útlitinu ekki hægt að lýsa öðruvísi en gyðjulegu Að sjálfsögðu toppar það svo allt þegar í lok þáttar læðist í húminu seinnipart kvölds í náttkjólnum í ískápinn til að narta í leifarnar. óboy óboy. -------------------------------------------------------- Gott að frétta af sjósókn, búið að vera reitingsafli eða um 15 tonn á dag frá því við byrjuðum og ágætisveður. Veðurspáin er svo hagstæð næstu dagana og vonandi heldur fiskiríið líka. Þá verðum við aldeilis sáttir, þrátt fyrir bægslagang og barlóm í þjóðfélaginu. Heyrumst fljótlega. |
| Nína May 22, 2009 01:24 AM PDT Friðrikka er ekki slæm heldur. Bróðir þinn má ekki missa af henni, haha. | ||
| Billa sys April 8, 2009 09:33 AM PDT Til hamingju með afmælið í dag - mætti koma blogg í tilefni dagsins :-) | ||
| steini February 28, 2009 10:38 AM PST Fer þetta fljótlega ekki að koma bráðum? Ég bíð spenntur eftir næstu færslu og er með miklar áhyggjur af hvort þú sért ennþá á lífi. | ||
| Leave a Comment: |